Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum!!!!

Já gott fólk svona byrjaði ferðin á smá hvílt í Herjólfi og mun að sjálfsögðu byrja þar um borð þetta árið líka

Og að sjálfsögðu var María alveg með þetta ásamt öllum hinum hehehe

Við vorm langflottastar í fyrra og verðum enn flottari þetta árið með enn fríðari hóp:-)

Við vorum geðveikar með rörin okkar á eyrunum "þurfum að geta talað saman ef við týnumst"

Já skvísan er sko með þetta klárlega

Og seinasti dagurinn var náttúrulega bara slökun og æðislegur í alla staði heheheh
En já gott fólk þetta er bara brota brot af því sem koma skal fyrstu helgina í ágúst, og já það er sko EKKI LANGT ÞANGAÐ TIL. hehehehehe Nú er bara að plana eitt gott upphitunarpartý með öllum bestu þjóðhátíðarlögunum á fóninum. Og já til að taka það fram þá bíður Pinky spennt hehehe
Knús knús á ykkur öll
Til hamingju með afmælið ástin mín!!!!!!!!
Pælið í því litla prinsessu dúllan mín er orðin 3 ára:-) Já litla skottan á afmæli í dag og er alltof langt frá frænku sinni í augnablikinu
Þarna er maður bara rétt mánaðagömul og er á leiðinni í göngutúr með frænku, að sjálfsögðu varð ég að taka mynd af henni áður en við löbbuðum út:-) Svo lítil VÁ

He he maður hefur mátt þola ýmislegt frá þessari stóru frænku hehehe

Svo stækkar maður og verður fallegri og fallegri prinsessa með hverju árinu sem líður.
En vildi bara skrifa smá blogg um þessa gullfallegu prinsessu mína. Allt gott að frétta af mér hérna á klakanum og lofa að henda inn myndum fljótlega.
Knús knús og kossar frá Pinky
Klakinn góði;-)
Jæja glöggir lesendur hehe mín er mætt á klakann og það algjörlega óvænt gagnvart fjölskyldunni sem var ógó gaman:-) Við náttúrulega fengum voða lítinn svefn skvísurnar allar síðasta sólarhringinn þar sem var drifið sig á lappir um 4 í nótt og haldið útá völl. Þar tók við eitthvað smá stresskast í minni hehe (veit ekki útafhverju þar sem allt gekk svo vel hehe) Konni örugglega haldið að við værum ruglaðar þegar strákurinn hitti okkur á vellinum með nokkuð margar töskur, kíló og tax free miða fyrir allan peninginn hehehe En við komumst óhultar um borð í vélina og lentum 9 í morgun á Keflavíkur flugvelli og komum þar með föður mínum svona líka skemmtilega á óvart:-) Nú haldið var heim til múttu þar sem hún hélt að hún væri að taka á móti litlu skvísunni sinni og þar með undrunarsvipur á andliti konunnar þegar stóra skvísan gekk inn í húsið;-) Svona finnst mér spennandi og gaman hehehehe.En allaveganna mín er kominn á klakann góða og ætlar að endast hérna til 1.sept hehe Þannig nægur tími fyrir góða hittinga með fólkinu mínu.
Talandi um það á svo yndislega vini og vil bara segja það hérna hér og nú, hitti nokkra í dag og í kvöld og vonandi restina um helgina;-) Hlakka ofur til að hitta minn yndislega ljúfling og hans son vonandi á morgun og gera eitthvað ógó skemmtilegt með þeim feðgum. Love them so much. Svo er planið að hitta krúttuna mína af Skaganum líka og vonandi snúlluna af Völlunum;-) Allaveganna hlakka til að hitta ykkur öll
Knús knús góða nótt
Jæja ný færsla gott fólk:-)
Kannski alveg komin tími á að henda inn smá bloggi hérna, allaveganna svona nokkrum línum heheheSíðustu dagar hafa verið alveg hreint magnaðir og mikið um gestagang hjá gellunni í Köben sem er bara æðislegt. Brínkan mín var náttúrulega stödd hérna hjá mér í tvær vikur og brölluðum við alveg fullt saman. Meðal annars lærðum nýtt tungumál og vil ég hér með þakka Bjössa (Birni Óskari) fyrir æðislega góða kennslu og skemmtun í gegnum símann hehehehe Þú ert æðislegur elskan, veit ekki hvað ég gerði án þín!!!! Nú svo fórum við gellurnar í tvenn tívolí, túristasiglingu, Christaniu, Vax museum, shopping trip og margt fleira. Takk æðislega fyrir komuna elskan mín
Við hérna restin höfum verið rosalega duglegar að labba síðustu tvo daga, skelltum okkur í grenjandi rigningu á 17.júní skemmtun í Strandparken í gær hjá Íslendingafélaginu hérna í Köben og guð minn góður, þetta var bara fyndið:-) Við löbbuðum svo um Herlev í dag og ég sýndi þeim svona sitt lítið af hverju af litla sæta bænum mínum hérna:-) Enda þær mægður að flytja hingað til mín í haust og erum við að leita að húsnæði á fullu og hver mínúta nýtt, enda við búnar að sækja um eina geggjaða íbúð sem er hvorki meira nér minna en um 130 fm hehehehe
En ætla að láta þetta gott heita skvísur og gæjar sem lesið þetta og láta vita að ég er að henda inn nýjum myndum, þótt fyrr hefði verið:-)
Knús knús frá Köben og sjáumst fljótlega á klakanum
P.S Hallur minn ertu ekki að standa þig í að finna fyrir mig mann hehehehe;-) Trusting on you
Komin með kærasta!!!!;-)
ÆTLA AÐ BYRJA ÞESSA FÆRSLU Á ÞVÍ AÐ ÓSKA HONUM BJÖSSA MÍNUM TIL HAMINGJU MEÐ ÁFANGANN. Alveg frábært hjá þér elsku kúturinn minn, var svo sannarlega með þér í dag í annarri mynd heheEn er ekki komin tími á smá fréttir af skvísunni í Köben, langt síðan síðast. Nú Bryndís mín er komin eins og lesendum ber að vita af hehehe og við gellurnar búnar að hafa það svakalega gott í 25-30 stiga hita og sól;-) Kíktum á smá tjútt seinustu helgi með systrunum mínum á Amager og var það brjálað stuð eins og vera ber. Nú erum búnar að vera rosalega latar í vikunni og ekki gera mikið á kvöldin en tókum einn góðan dag þegar ég var búin 12 á hádegi og skelltum okkur í Bakken sem er skemmtigarður hérna rétt hjá og var það brjálað stuð:-) Í gærkvöldið fórum við svo ásamt hinum skvísunum í tívolíið hérna niðrí bæ og skemmtum okkur vonum framar hehehe Æðislegt kvöld þar enda við Brínkan mín búnar á því og fórum bara heim um miðnætti, veit ekki alveg að standa okkur en það breytist nú í kvöld þar sem við erum að gera okkur sætari fyrir smá kvöldgöngu eftir góðan dag á ströndinni;-)
En aðalfrétt þessa bloggs er semsagt að mín er komin með kæró, hann heitir Akakabababa og kemur frá Kulalumbur, 140cm og skáeygður júdókappi hehehehe Klárlega einn sá besti í bransanum og er ég yfir mig ánægð. En verð að skella nokkrum fleygum hérna inn sem komu í nótt í þvílíkum svefngalsa sem gekk yfir fólk hér á Herlev kollegiinu hehehehe "Þarf að skila videospólu", "Er bara að lenda eftir rosalega flugferð" Hehehe smá einkahúmor en þetta var klárlega fyndið!!!!
Nokkrir dagar í litlu systir og Steffí mína og Selmu sætu og verður bara glatt á hjalla þá eins og við er að búast. Búið að vera rosalega skemmtilegur tími hjá gellunni með alla gestina sína:-)
En knús knús á liðið og gangið hægt um gleðinnar dyr í kvöld
Enda þessa bloggfærslu á góða faðirvorinu;-)
Það er vor.
Ég er í sjöunda himni.
Helgin fyrir stafni - búinn að fara í ríkið.
Veðrið er æði, sólin skín,
hvergi ský á himni.
Búinn að panta súpu og brauð
og búinn að borga allar mínar skuldir,
svo sem engin ósköp sem
ég á af skuldunautum.
Er á leið í ofsa veislu,
ætla að láta öllum illum látum,
Því að þetta er lífið,
náttúran og dýrðin
að eilífu
gaman!
Smá blogg:-)
Jæja elskurnar mínar nær og fjær!!!! Er ekki komin tími á að setja smá færslu hingað inn, allaveganna smá rit;-)Nú foreldrarnir mínir komu á fimmtudaginn síðasta og var það þvílíkt æðislegt að fá þau, tók á móti þeim á flugvellinum og fórum við beint hingað heim í litla sæta kotið mitt:-) Við erum búin að hafa það alveg yndislegt, skoða fullt og njóta æðislegu veðurblíðunnar, sitja í mannlífinu í bænum og drekka hvítvín og hafa það gott. Svona á lífið að vera, meira að segja búið að vera svo gott hjá okkur að mamma framlengdi bara og ætlar að vera hjá prinsessunni sinni þangað til á laugardaginn:-) Á laugardagsmorguninn fer maður svo útá flugvöll og tekur á móti Brínkunni mínni, vá hvað það verður stuðið á okkur gellunum hérna!!!! Þannig ég verð ekkert ein sem eftir er hehehehe bara gaman, því svo 14 koma hinar skvísurnar mínar:-) Getur verið að tveir bakkabræður frá Íslandi komi hingað líka í helgarreisu og þá verður sko glatt á hjalla og Hallur minn, gítarinn kemur með;-)
En ætla að fara að fá mér kaffisopa með múttunni minni, var að skríða á fætur þar sem var næturvakt hjá minni í nótt:-)
Take care dúllos og hafið það gott
Knús knús
Ævintýri líkast:-)
Jæja elskurnar, verð að henda inn bloggi þar sem er svo mikið að gerast hehehe Kannski finnst ykkur þetta ekkert skemmtilegt en á mánudaginn var ég að vinna á vöknun á spítalanum og var það ógó gaman:-) Margt spennandi að sjá og virkar öðruvísi en maður býst við. Svo í dag þá leit ég svona út:-)
Ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að ég fékk að vera í allan dag á skurðdeildinni:-) Vá hvað það var gaman, byrjaði daginn á því að vera viðstödd keisaraskurð þar sem lítil prinsessa leit dagsins ljós, svo tóku við tvær minni aðgerðir og endaði svo daginn á stórri aðgerð þar sem móðurlíf var fjarlægt úr konu. Eins og ég segi þetta var ekkert smá gaman og spennandi:-) Er alveg á réttri braut í lífinu og valdi rétt með þessu námi!!! Allaveganna ennþá hehehe
Svo eru mamma mín og pabbi minn að koma annaðkvöld til stelpunnar sinnar í heimsókn, verður það bara æðislega gaman og notalegt. Hlakka svo mikið til að ég er að deyja, nú þegar þau fara verða ekki nema fjórir dagar í Brínkuna mína eiginlega bara þrír. Svo koma prinsessurnar mínar á meðan Bryndís verður enn hérna og og verða alveg þangað til ég fer heim eða nánast:-) Bara gaman
Verð svo bara að enda þetta blogg á mynd af litla sæta prinsinum hjá gullinu mínu, eruð þið að grínast með prakkarasvipinn og hvað þessi saga kom mér í hláturskast. Sé hann alveg fyrir mér þegar pabbi hans kom að honum hehehe
Hann komst í krem sem pabbi hans var að kaupa hehehehehe YNDISLEGUR ENGILL.
En eigið yndislega helgi elskurnar mínar allar sem einn!!!!! Og þið sem ætlið á skrallið, gangið hægt um gleðinnar dyr og gerið ekkert sem ég myndi ekki gera;-)
JÁ OG ÁFRAM LIVERPOOL:-)
Knús knús
14 ára og 6 ára:-)
Já þessi skvísa sem er hérna fyrir neðan með mér á myndinni er orðin 14 ára gömul, er verið að djóka í mér bara:-) Þann 18 maí 1993 kom pabbi og sagði mér og brósa þær gleðifréttir að við værum búin að eignast litla systur, já hún var þá lítil hehehe
hehe já þau stækka víst þessar blessuðu elskur og ekki veit ég hvar þetta endar þar sem þetta barn verður bara fallegra og fallegra með hverju árinu sem líður:-) Já elska systir mína útaf lífinu:-) Hérna fyrir neðan er svo ein nýlegri mynd af henni:-)

Oh hún var svo sæt og flott á fermingardaginn:-)
TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU SYSTA MÍN, get ekki beðið eftir að fá þig hingað til mín í heimsókn í júní:-)
En hún er ekki sú eina af mínum krúttum sem á afmæli heldur þann 19 maí. 2001 fæddist lítill prins í heiminn sem ég fékk svo þann heiður að fá að passa í heilt ár í USA. Guð hvað tókst mikill vinskapur og væntumþyggja þar á milli og get ég heldur ekki lýst því með orðum hvað hann er mér mikils virði og öll hans fjölskylda.

Já hann hefur nú líka stækka aðeins þessi prins síðan ég var þarna úti og kynntist honum fyrst hehehe:-) Svo ein af honum líka í dag

hehe já eins og ég segi þau stækka öll:-)
Vildi óska að ég gæti haft þessi afmælisbörn hjá mér núna en það biður betri tíma og meira að segja held ég að þau verði bæði hjá mér í sumar, þar sem ég held að litli guttinn sé jafnvel að koma í smá ferð til Íslands:-)
Annars er allt voða rólegt að frétta úr Danaveldinu, Helgan alltaf svo róleg enda ekki við öðru að búast en lognmollu í kringum þá gellu;-)
Ekki nema tvær vikur í Brínkuna mína og þar með fjórar vikur í skvísurnar mínar þrjár, Steffí, Selmu og Rakel Ýr. Vá hvað verður gaman hjá mér í júní, og svo bara klakinn.
Er að henda inn myndum frá því Liljan mín og Andri krútt voru hérna þannig endilega að kíkja í albúmið;-)
Segi þetta gott í bili og ætla að fara að koma mér í bólið eða kannski skella einni mynd í tækið og sofna yfir henni.
Knús knús á klakann frá fröken pinky
Liljan mín og Andri Snær hjá Helgu sinni:-)
Jæja elskurnar mínar nær og fjær, komin tími á færslu hingað held ég bara:-) Mikið búið að gerast og mikið að segja frá hehe
Á fimmtudagskvöldið síðasta hélt mín útá flugvöll og ná í enga aðra en mæðgin mín sætu, Lilju Rún og Andra Snæ JIBBÝ. Andri alveg spenntur eftir flugið enda strákurinn að fara í flugvél í fyrsta skiptið, vó!!!!! Við héldum bara heim í kotið mitt enda klukkan orðin margt og eurovision kvöldið góða þannig náðum úrslitinum, já einmitt Eiki okkar ekki áfram:-( En ekki kannski við því að búast miða við hver er að yfirtaka þessa keppni hehe Nú Andra fannst kotið hennar Helgu aðeins of lítið fyrir hans smekk hehe og rosalega lítill "pallur" hehe já við erum að tala um litlu "svalirnar" mínar sem eru ekki einu sinni svalir.
Við komum okkur vel fyrir hérna og fórum fljótlega að lúlla enda ferðalangarnir þreyttir, við tók svo æðislegur föstudagur sem var eytt í tívolíinu frameftir kvöldi ásamt Sirrý frænku Andra og Lilju sem býr hérna líka. Mikið farið í tækin, borðað þar inni og endað kvöldið á útitónleikum. Strákurinn og stelpurnar hans hæstánægðar með daginn og kvöldið þegar heim var haldið:-) Laugardagurinn fór svo í verslunarleiðangur, enda ekki hægt að sleppa H&M og fleiri búðum á Strikinu þegar fólk kemur til Köben
Við fórum svo hingað heim og skiptum um föt og héldum í afmælis/eurovision partý hjá Ástunni minni (Til hamingju með afmælið í síðustu viku snúllan mín
) Þetta var voðalegt stuð og allir að fylgjast með norðurlöndunum hrynja úr keppni, eins og ég sagði áður Hvar endar þessi keppni??? Getum farið að kalla þetta eitthvað annað en eurovision allaveganna. Við héldum svo heim með prinsinn litla um 11 enda dauðþreytt fólk á ferðinni og dýragarðurinn á sunnudeginum. Já það var sko heldur betur gaman að fara í hann og verð ég að viðurkenna að ég var orðin alveg eins og lítið barn aftur að skoða hehe Þetta var rosalega gaman og fullt af dýrum sem maður sér ekki venjulega allaveganna ekki á Íslandi:-) Get ekki beðið eftir að sýna litlu systir og Selmu Rún hann!!!!!!
Eftir dýragarðinn var haldið í kotið mitt og mæðgin pökkuðu niður, Sirrý kom með okkur og við sátum þrjár skvísurnar og fengum okkur eitt glas af rauðvíni og vínber á meðan litli pjakkurinn horfði á video hérna hjá okkur:-) Oh þetta var æðislegt í alla staði og vil ég þakka þeim æðislega fyrir frábæra heimsókn. Sakna ykkar strax ógurlega, en stutt í heimkomu hjá mér samt sem áður.
Fékk svo þær frábæru fréttir að Brínkan mín ætlar að koma hingað til mín 2 júní og vera til 15 júní og svo 14 koma Steffí mín, Selma og Rakel Ýr og verða til 28 júní:-) Þannig Helgan er sko ekki ein í kotinu nema rétt rúmlega þrjár vikur í viðbót, oh en æðislegt bara!!!!
En ætla ekki að hafa þetta lengra enda á fullu í tiltekt og látum hérna, lofa að setja inn myndir í vikunni:-)
Knús knús og kossar á klakann